18.4.2008 | 15:45
Karlmenn
Nú tala sumir karlmenn um það hversu konur séu erfiðar - oft á tíðum illskiljanlegar og ólíkar þeim - flóknar.. er mér sagt Hm..ekki veit ég hvort það er rétt, öll erum við komin af öpum, úr sömu sköpum (eins Páll Óskar syngur hehe) og þannig þegar allt kemur til alls, erum við örugglega frekar lík inn við beinið.
Enn... ég á líka oft erfitt með að skilja karlmenn.. þrátt fyrir það hversu yndislegir þeir geta verið þessar elskur, ljúfir og mjúkmæltir, brosa breitt .. og ekki gæti ég hugsað mér að vera án þeirra.. ó nei
En hér sit ég í dag, 36 ára gömul, kona á besta aldri sem þóttist nú hafa þó nokkra reynslu af þessum samskiptum öllum saman.. en er þó engu nær - og ég er ALLS ekki að skilja karlmenn .. eða ..hm.. ég hef að sjálfsögðu einn tiltekinn ljúfling í huga sem er að valda mér miklum heilabrotum í dag.
En mitt allri þessari melankólíu rekst ég á ég á eftirfarandi.. frekar skondin lýsing á því hvernig "Karlmenn fara í sturtu" ..kom mér að minnsta kosti til að brosa allan hringinn ... því stundum er gott að "reyna" að nota húmorinn til að koma sér í gegnum erfiða daga
AÐ FARA Í STURTU EINS OG KARLMAÐUR:
Farðu úr fötunum, sitjandi á rúminu og skildu þau eftir í hrúgu fyrir framan rúmið. Gakktu nakinn í átt að baðherberginu.
Ef konan sér þig á leiðinn, hristu þá "vininn" og segðu Vúúííí!!
Skoðaðu karlmannlegt vaxtarlag þitt í speglinum og dragðu djúpt andann til að athuga hvort þú sért með "sixpakk". Horfðu með aðdáun á stærðina á "félaganum" , gríptu um hann og segðu ; " jú vonna pís of ðis beibí".
Farðu í sturtuna. Ekki hafa fyrir því að leita að þvottapoka - ekki nota hann ef þú rekst á hann. Þvoðu þér í framan, undir höndum og "vöðvann". Hlæðu kjánalega yfir því hvað það heyrist hátt þegar þú rekur við í sturtu.
Notaðu sjampó í hárið en ekki nota næringu. Búðu til móhíkana-kamb með sjampóið í hárinu. Dragðu aðeins frá sturtuhengið til að sjá sjálfan þig í speglinum (tíhíhíhíhí). Pissaðu (í sturtunni að sjálfsögðu).
Skolaðu þig og farðu úr sturtunni. Ekki taka eftir vatninu á gólfinu (sem kom til af því að þú hafðir hengið fyrir utan sturtubotninn). Þurrkaðu þér lauslega. Horfðu á sjálfan þig í speglinum. Taktu nokkrar "pósur" og horfðu með aðdáun á stærðina á "jókernum" (aftur).
Ekki draga fyrir sturtuna, og skildu eftir blautt gólf. Ekki slökkva inná baði. Gakktu í átt að svefnherberginu með handklæðið um mittið. Ef að þú rekst á konuna , dragðu þá handklæðið frá, gríptu um "gossann" , taktu eina Elvis-sveiflu og segðu "Ssssjabúmm."
Athugaðu hvort að nærbuxurnar séu blettóttar, ef ekki, farðu þá í þær. Taktu sundur sokkaparið á gólfinu. Brjóttu aðeins úr þeim, og farðu í þá. Farðu nýjan bol, en vertu annars í sömu fötum og nú notaðir í gær.
Hafið það nú sem allra best um helgina
knus
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.4.2008 | 21:33
Að grípa egg
Ég er byrjuð í nýju námskeiði í lýðheilsufræðunum ; Skipulag aðgerða og þróun úrræða í lýðheilsu. Er búin að hlakka mikið til þessa námskeiðs, sérstaklega vegna þess að við erum með frábærann kennara. Hún heitir Kerry Bozza, er bandarísk og kemur sérstakleg hingað til lands til að kenna þennan áfanga í HR. Hún kenndi okkur í desember sl. og var það einn skemmtilegasti áfanginn sem ég hef farið í hingað til.
Kerry er alltaf hress, ótrúlega jákvæð, hefur sérstakan hæfileika til að láta okkur líða vel í tímunum hjá henni þrátt fyrir einstaka "tungumálaerfiðleika". En umfram allt, þá notar hún oft óhefðbundnar kennsluaðferðir. Á síðasta námskeiði hjá henni fórum við m.a. í kappræður - á ensku , spiluðum jeopardy ( að sjálfsögðu um lýðheilsu) og notuðum leikræna tjáningu til að skilja betur ónæmiskerfi líkamans.
Í fyrsta tímanum hjá Kerry á mánudaginn sl. fórum við svo í eggjaleik - svona rétt til að hita okkur upp fyrir námskeiðið - hehe.
Þetta fór þannig fram að Kerry skipti okkur í 5 hópa. Þar næst fékk hver hópur nestispoka með 3 A4 blöðum, 3 tyggjóplötum, 6 pappírsklemmum, 1 teygju, 1 plastbolla, 1 fernu af kókómjólk, 1 blýanti, litlu bandi, 3 bómullarhnoðrum og 1 litlu trépriki. Fyrir hvern og einn hlut þurfti að borga vissa upphæð (mismikið þó) og aukalega gat maður keypt nokkra cm. af límbandi og nokkur klipp (með skærum).
Við fengum svo 25 mínútur til að útbúa einskonar öryggisnet - má líka kalla það "grípara" (eins ódýrt og einfalt og hægt var) - fyrir hrátt egg sem var látið falla (free - fall egg) ca. 2 metra - frá lofti niður í "gríparann". Það gefur auga leið að ef "gríparinn" náði ekki að grípa eggið.. hm.. þá lenti það á gólfinu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum úps..
Eggið átti þannig að tákna þýðið eða fólkið sem við (lýðheilsufræðingar) berum ábyrgð á - eða réttara sagt reynum að vernda fyrir þeim ýmsu heilsufarslegum hættum sem umkringir það í daglegu lífi - jeps.
Nú minn hópur stóð sig alveg svakaleg vel... þó ég segi sjálf frá . Við útbjuggum mjög hentuga og umfram allt ódýra lausn á vandamálinu. Við notuðum plastbollann, útbjuggum svo trekt úr 2 A4 blöðum sem við stungum ofan í bollann. (við notuðum 2 cm af límbandi til að festa þetta saman) Þar næst tókum við bómullarhnoðrana, settum þá í botninn og helltum svo kókómjólk yfir til að þyngja herlegheitin og gera bollann stöðugri. Þetta var sem sagt hönnunin hljómar vel ekki satt??
Við fengum þar á eftir 3 mínútur til að stilla upp "gríparanum" - það var auðvitað mjög mikilvægt að eggið lenti í "gríparanum" en ekki svona rétt til hliðar eða eitthvað í þeim dúr og miklar pælingar fylgdu því auðvitað.
Kæru vinir, þið megið ekki gleyma að að þetta átti var "free fall", hrátt egg sem átti að detta 2 metra niður í "gríparann" !! Spennan var gríðarleg..Kerry hengdi eggið upp, klippti svo á bandið... og... jú,jú, þetta gekk bara eins og í sögu og lendingin var mjúk og hvergi sást rispa á egginu Við stóðum okkur sem sagt með mikilli prýði og ættum því að geta kallað okkur lýðheilsufræðinga með réttu eftir eggjaleikinn... eða .. ég tel okkur að minnsta kosti vera á réttri leið. Ég vil þó nota tækifærið og nefna það hér.. þannig að enginn móðgist..hehe.. að allir hóparnir stóðu sig mjög vel og kláruðu eggjaverkefnið með stæl
13.4.2008 | 21:59
Að slá konu gullhamra
Ég heimsótti elskulegu litlu systur mína hana Rönku í gærkvöldi.
Var skutlað á staðinn í löggubíl.. .. var tekin á leiðinni.. - nei annars..bara smá grín hehe . En af því að kellan nennti ekki í strætó og vildi spara sér leigubílinn tók hún upp símtólið og hringdi í einn af uppáhalds einkabílstjórunum sínum.. sem vill svo merkilega til að er lögga sem var á bakvakt í gær. Jeps..þannig komst ég til Systu og fékk þessi ljúflingur að sjálfsögðu koss fyrir viðvikið.
Systu og mér tókst svo á næstu klukkustundum að klára nokkra kalda öllara, ræða heimsins mál og málefni, fara á trúnó og leggja Tarotspil. Ekki man ég nú nákvæmlega spádóminn en við urðum þó sammála um það að góðir tímar væru framundan - auðvitað.
Svo var hresst upp á make-upið og arkað sem leið lá niður Laugaveginn. Áfangastaður; Ölstofa Skjaldar og Kormáks. Þar hittum við Helgu P. hjúkku og göngugarp með meiru, barinn var svo í framhaldi af því heimsóttur og einn kaldur keyptur
Eftir því sem leið á nóttina fylltis Ölstofan enn meira - í bókstaflegri merkingu - og enn fleiri fylltust örvæntingu í leitinni að ástinni Hitti ég einn þeirra í nótt. Hann kom að mér, dökkhærður með breitt smjaðurslegt bros. Ekki ómyndarlegur, hafði búið erlendis í mörg ár og höfðum við þannig ýmislegt að ræða um. Eitt kunni hann líka fyrir sér.. það var að slá konu gullhamra. Ég .. kellan.. var sú flottasta, gáfaðasta, fallegasta mest sexí kona sem hann hafði í sínu lífi hitt Og það sem hann nefndi ekki; bláu augun - flottust.. hárið - fallegast.. - munnurinn - hm... nefni það nú ekki hehe Enn... ég hugsaði með mér, fínt haltu bara áfram..ég veit ég er æði..hehe.. og gáfuð líka hehe og svo sæt Og..hann hélt áfram.. og áfram.. hann var greinileg búinn að prófa þetta allt áður og líklegast hafði þetta virkað fyrir hann.. í einhverjum tilfellum.. en á mig - kelluna var þetta ekki alveg að virka.. ég fór bara í staðinn á algjört egoflip, tók öll þessi smjaðurmæli inn og hugsaði með mér "hm..já..þetta er bara aldeilis fínt fyrir sjálfstraustið og mína innri konu". Svo brosti ég bara breitt og sagði; "takk, takk" og reyndi þar næst að koma mér undan og láta mig hverfa. Ætlaði að finna Systu og Helgu en þær hvergi sjáanlegar og ákvað ég því að yfirgefa staðinn og leggja í leigubílaröðina. Ég var rétt nýkomin út fyrir þegar daðraranum tókst að þefa mig uppi.. vildi endilega fylgja mér í leigubílaröðina. Ég hugsaði með mér; ok fínt...hafði svo sem ekkert á móti því að hafa félagsskapinn enda hálfeimana eftir að hafa týnt stelpunum. Mér varð það þó nokkuð ljóst, að eftir því sem við nálguðumst leigubílaröðina meira að hann hugsaði sér greinilega að verða SAMFERÐA mér í bílnum.
Nei,,takk það var ekki málið fyrir kellu..alveg sama hversu mikið hann hafði skjallað mig fyrr um nóttina. Þegar við komum að röðinni tókst mér því einhvern veginn að smeygja mér inn á milli nokkurra hávaxinna karlmanna (og kvenna enda er kellan frekar lágvaxinn) og hreint út sagt lét mig hverfa, týnast..hm.. fela mig. Ég sá hann sveima fyrir utan skýlið... leitandi að mér.. og kannski var þetta frekar ljótt af mér en ég var búin að taka þá ákvörðun að vilja ekkert með hann hafa.. og síst af öllu taka leigubíl með honum!! Ég varð því ekkert smá fegin þegar ég sá hann hverfa á brott, kannski leitandi að annarri konu til að slá gullhamra.. hver veit.
Ég aftur á móti, beið og beið í alltof langri, leiðinlegri og snjókaldri leigubílaröð í að minnsta kosti klukkutíma. Ég var alvarlega farin að íhuga það að hringja í einhvern til að sækja mig.. ótrúlegt að þurfa að bíða svona lengi eftir leigubíl..ojj. Ég var því orðin frekar köld og þreytt þegar ég loksins komst heim til mín í nótt..alltof,alltof seint enda hefur dagurinn í dag borið þess merki
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.4.2008 | 17:49
Keilir er málið...
Fór í stórkostlega göngu í dag. Veðrið upp á sitt besta og ekki bætti úr skák að ég var samfloti með alveg frábærum konum Er búin að þjálfa rass og læri, orðin sólbrún og endurnærð eftir daginn.
Endilega skoðið NÝJU bloggsíðu Gönguhópsins JáSæll (sjá link vinstra megin á síðunni) - þar er ég búin að setja inn myndir og skrá litla ferðasögu.
Hér erum við skvísurnar flottar á toppi Keilis:
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.4.2008 | 22:48
Ég er svo heppin..
Ég er svo heppin að reka ekki bíl. Eftir margra ára búsetu í Danaveldi þar sem tveir jafnfljótir, hjól, vespur og önnur undarleg farartæki á tveimur hjólum eru aðal samgöngutækin tók ég þá ákvörðun að reyna að vera dönsk á Íslandi. Fara allra ferða minna fótgangandi eða í strætó. Spara pening og vera umhverfisvæn - græn. Ég hef þó verið svo heppin að eiga oft góða að, bæði vini og vandamenn sem ég hef ráðið í vinnu hjá mér sem einkabílstjóra. Þeir hafa skutlað mér hingað og þangað - þó aðallega í matvörubúðirnar sem virðast oftar en ekki liggja einhversstaðar í jaðri úthverfanna. Þegar stórinnkaup standa svo fyrir dyrum er nær ómögulegt fyrir konu eins og mig (þó svo að hún sé sterk og ágætlega á sig komin ) að koma sér heim með vörurnar. Þá hafa einkabílstjórarnir komið sterkir inn .
Í Danmörku reddaði maður sér aftur á móti annaðhvort með því að; a) að taka innkaupavagninn með sér heim...þægilegt enda hægt að skella heilum kassa af Carlsberg (30 flöskur) undir körfuna eða b) nota gamlan barnavagn og skella vörunum í .. það er reyndar líka hægt að setja heilann kassa af Carlsberg undir hann og þannig er barnavagninn einnig mjög handhægur. Ég verð að viðurkenna að ég hef hreinlega ekki lagt í það að rúlla Netto kerrunni úr Mjóddinni upp í í Gljúfraselið.. hvað þá að ná mér í einn gamlan barnavagn Þarf kannski að íhuga þetta í framtíðinni, ég gæti kannski komið af stað nýju "trendi" hérna á Íslandi..viljum við ekki öll spara og reyna að vera svo GRÆN!
Annars er eitt af því besta við að vera fótgangandi að sleppa við það að þurfa að fara út í umferðina á morgnana. Ég geng sem sagt úr Seljahverfinu yfir í Kópavoginn, ca. 20 mínútna ganga aðra leiðina. Og smá fróðleikur; þar sem Lýðheilsustöð mælir með því að fullorðnir einstaklingar hreyfi sig að minnsta kosti 30 mínútur á dag er kellan er að ná þessu og rúmlega það..hehe.. Ég er bara ansi ánægð með mig og svo næ ég að halda mér í formi fyrir allar "fjall" göngurnar sem eru framundan í vor og sumar. Gott mál það.
Læt fylgja nokkrar myndir með frá gönguferðinni í morgun, sólin skein, fuglarnir sungu og ég mætti endurnærð í vinnuna
9.4.2008 | 23:10
Loksins er kellan farin að blogga
Jæja, þá kom að því að frúin færi nú að tæknivæðast og byrjaði að bloggast. Takk fyrir elsku Ásdís að koma mér af stað.. án þín væri ég hmm.. jæja en þú sparkaðir mér að minnsta kosti af stað.
Hvernig væri nú að skrifa með stærra letri hmm..- er svona að prófa mig áfram með síðuna en ákvað að byrjaði á því að skella nokkrum myndum inn úr fermingu Elísu Guðrúnar 16. mars sl. þar sem nánasta fjölskyldan var samankomin í á heimili foreldra minna í Fitjasmáranum. Frábær dagur sem heppnaðist vel.
Ætla að lokum að láta fylgja með eitt af uppáhaldsatriðum mínum úr Fóstbræðrum. Hef undanfarið verið ansi dugleg inni á YouTube og skannað video o.fl. - að mínu mati eru þeir algjörir snillingar og betra grín hefur ekki sést í íslensku sjónvarpi. Algjör snilld.. hér eru MogoJacket
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)