Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Tilkynning

Borist hefur tilkynning um að nýtt frumefni hafi fundist "Frumefnið Karl"

Frumefnið finnst: í sófum, á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum endanum á vindli eða veiðistöng. Sjaldan þó nálægt börnum.

Eðlisþyngd: 70-140 kg - og er breiðast um miðjuna.

Eðliseiginleikar: Þenst út í nálægð peninga og  valds, skreppur saman í grennd við ryksugu og gólfskrúbba. Fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á við umræður um jafnrétti og kvenfrelsi. Þó ósjálfbjarga án kvenna.

Efniseiginleikar: Dregst að fokdýrum dauðum hlutum, tækjum og tólum. Ofsafengin viðbrögð við skort á umönnun og eftirtekt þ.e. ósjálfbjarga án kvenna.

Notkun: Nauðsynlegt til æxlunar en ekki til teljandi gagns að öðru leyti.

Hristist við notkun.

Varúð: Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki á verði.

LoLKissing


Sætar á Vörðuskeggja

IMG_0044

Við Íris fórum í yndislega göngu sl. sunnudag.  Örkuðum á Hengil, 14 km fram og tilbaka og erum við bara ansi stoltar af því afreki. LoL Sitjum þarna á toppnum er kallast Vörðuskeggi, bara nokkuð flottar þó ég segi sjálf frá Cool

Fleiri myndir inn á www.gongugarpar.blog.is - og ég lofa..nú fer ritstíflan að losna og Melkorka fer aftur að blogga Blush eða...eftir Eurovisionið..áfram Ísland og Eurobandið Tounge jibii..

 

 


166 Rauðar blöðrur og 15 Svartar blöðrur

 

 

IMG_0037

 

Takk fyrir frábæra göngu í dag - endilega kíkið  í myndaalbúmið; Ganga gegn Slysum hér til hliðar.

Melkorka Kissing


mbl.is Gengið gegn slysum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Precede -Proceed módelið

Skólinn er nú aldeilis búinn að taka meira og minna allan minn tíma þessa  vikuna.. og bara lítill sem enginn tími fyrir bloggið Blush En ég ætla nú að reyna að bæta aðeins úr því núna.. og já.. deila með ykkur hinu stórkostlega PP módeli sem hefur haldið mér bíssí undanfarna daga.

Ég er sem sagt búin að vera í mjög krefjandi hópavinnu undanfarið hjá henni bandarísku Kerry, eggjakonunni ef þið munið Wink sem lauk svo með nemendafyrirlestrum í gær.

Kerry er búin að vera að þræla okkur í gegnum svokallað Precede-Proceed planning model sem er eins konar skipulagsmódel sem greinir m.a. markhópinn, skilgreinir vandamálið,.. eða í stuttu máli hjálpar að velja aðferð og kenningar við hæfi og beita þeim rétt þegar leysa skal eitthvað tiltekið vandamál. Þetta getur auðvitað skipt sköpum um hvort tiltekið lýðheilsuverkefni skilar árangri eða ekki!!

Módelið skiptist í 9 skref sem ég ætla ALLS ekki að fara nánar út í hér..en..ég og hinar skvísurnar í hópnum erum svoleiðis búnar að reita hár, svitna og bölva.. yfir þessu öllu saman GetLost..ótrúlega flókinn pakki. Ég ætla samt að taka það fram að húmorinn LoL var aldrei langt undan, enda nauðsynlegt þegar um svona krefjandi vinnu er að ræða þar sem maður er saman með hópnum sínum ...liggur við..  dag og nótt.. marga daga í röðWoundering 

En til að gera langa sögu stutta þá var okkur úthlutað markhópi sem var hvorki meira né minna en aldraðir eða seniors eins og það heitir víst á henni ensku ylhýru.

Annars.. ef ég fer eitthvað að sletta á ensku..þá er skýringin sú að öll kennsla, verkefnavinna og fyrirlesturinn hefur meira og minna farið fram á ensku Wink..jeps.. maður er bara orðin ansi góðurSmile

En aftur til gamla fólksins. Hópurinn minn..sem samanstóð reyndar af hinum frábæru konum; Bríeti..hjúkku með meiru...sem er reyndar að skipuleggja hinu árlegu Göngu gegn Slysum 8. maí nk. - en meira um það síðar.., Paulu hinni hálfbandarísku heilsueflingargúrú og Helgu Björk, hjúkku og næringarfræðingi sem aldrei gefst upp þó á móti blási Cool -allt hörku stelpur.

Kemur kannski ekki á óvart en við ákváðum að fókusera á karlmenn 65+ og reyna að skoða það, hvernig hægt væri að draga úr einangrun og einmanaleika hjá þeim er búa einir heima. Tilgangurinn var m.a. að draga úr tíðni þunglyndis hjá markhópnum og þannig auka lífsgæði þeirra. Tíðni þunglyndis hjá öldruðum er reyndar mjög lítið rannsakað hér á landi en allt virðist benda til þess að þetta sé mun stærri hópur en opinberar tölur segja til um Woundering 

Til að ná til þessa hóps ákváðum við (eftir miklar pælingar, gagnaöflun og mörg lög af precede-procede) að setja af stað verkefni sem kallað er Mind-Well og bíður eldri mönnum m.a. heimsóknir (eins konar heimsóknarvinir) og ráðgjöf. Við gáfum út bækling og stofnuðum vefsíðu www.mind-well.is. Hér fyrir neðan nokkrar myndir af skvísunum, bekknum og bæklingnum - og ég vil taka það fram að við erum bara ansi ánægðar með afraksturinn.Grin

 

IMG_0004      IMG_0025

IMG_0026

IMG_0057

  

 

 

 

 

 

 

IMG_0056

 

 

 

IMG_0058


Esjan er málið..

Skellti mér á Esjuna í dag með görpunum í JáSællTounge. Ansi mikið rok, en sól skein í heiði og útsýnið þannig stórkostlegt frá efstu hæðum Esjunnar.

Fínn dagur í góðum hópi göngufólks en myndirnar tala best sínu máli - kíkið því endilega á www.gongugarpar.blog.is þar sem ég er búin að hlaða inn fullt af  Esjugöngumyndum Cool

IMG_0080s

IMG_0105s

 

 

 

 

 

 

Ég og Sif - vindblásnar!!                                                           Íris, Ég, Lilja, Sif, Ásdís, Breki, Kerry og Álfgeir

 


Ævintýri, skopleikur eða harmleikur?

 

Stjörnuspáin mín í dag:

STEINGEIT 22. desember - 19. janúar
Um leið og þú skrifar enn einn dag í sögu lífs þíns, pælirðu í hvernig saga þetta eiginlega sé. Ævintýri? Skopleikur? Harmleikur? Þú kemst að því í kvöld.

Já, þetta er góð spurning..hvernig er líf manns Blush  Nú er komið kvöld og ég er svo sem engu nær!! Ætli líf fólks sé ekki samansafn af öllu þessu.. "ups and downs" eins og sagt er á hinu ylhýra enska máli.

Læt ykkur vita ef ég kemst að einhverjum leyndarmálum lífs míns í kvöld Wink og deili að sjálfsögðu með ykkur..thíhí.

Svo er það Esjan á morgun, búið að lofa frábæru veðri og hlakka mikið til ..  verður örugglega ævintýralegur dagur.. ekki spurning Tounge

Góða helgi

Mel.Orkan Cool

 

 

 

 


Bó Hall..

Rakst á skemmtilega litla grein í Fréttablaðinu laugardaginn 19. apríl sl. með fyrirsögninni; "Danskur aðdáandi bíður eftir Bó Hall." Ég rek upp stór augu W00t og ákveð að lesa áfram. Ekki verð ég minna hissa er þessi "frábæri" danski aðdáandi (sem reyndar heitir Liza)  segir að uppáhaldslagið sitt með Bó Hall sé lagið Núna Whistling sem var framlag Íslendinga til Eurovision árið 1995.

Ég fyllist stolti Happy og man um leið eins skýrt og það hefði gerst í gær.. árið sem að faðir minn ástkæri, textasmiður lagsins.. fór í "Bó Hall jakkanum" sínum til Dublin ( ef ég man rétt) og tók þátt í Eurovison. Man að ég sat heima í Stóragerðinu ásamt dóttur minni, rúmlega 1 árs, og horfði óvenju spennt á útsendinguna á RÚV.  Reyndi eftir fremsta megni að sjá lýsandi sól pabba í salnum..en það eina sem skein var Bó Hall sem söng lagið Núna með sinni ylhlýru, traustu rödd. Bó stóð sig vel  Wink.. en annars lentum við þetta í árið í því illræmda 16. sæti eins og oft áður.

Þetta var fyrsta og eina skiptið sem að pabbi tók formlega þátt í Eurovison Blush.  

Við í fjölskyldunni höfum oft reynt að fá pabba til að tjá sig um upplifun sína af Bó Hall og förinni til Dublin..en einhvernveginn hefur lítið verið um svör.  Hef stundum velt því fyrir mér ..hm.. en kannski var það sérsaumaði jakkinn með merki Bó Hall sem endanlega gerði út um úrslitin Gasp og föður minn enn fámæltari Errm

Ef mig minnir rétt þótti Binna bró mikið til "Bó Hall jakkans" koma og fékk hann lánaðan á MR ball..gerði mikla lukku að mér skilstCool  Síðan veit ég ekki hvað varð af jakka Bó..

Til að hressa upp á minnið ; hér kemur Bo Hall með lagið Núna:

 

 

 


Varð að deila með ykkur..

Hef aldrei í mínu lífi séð eða heyrt um annað eins og varð að deila með ykkur..  sjón er sögu ríkari Smile 

 

 

 


Karlmenn

Nú tala sumir karlmenn um það hversu konur séu erfiðar - oft á tíðum illskiljanlegar og ólíkar þeim - flóknar.. er mér sagt FootinMouth Hm..ekki veit ég hvort það er rétt,  öll erum við komin af öpum, úr sömu sköpum (eins Páll Óskar syngur hehe) og þannig þegar allt kemur til alls, erum við örugglega frekar lík inn við beinið. GetLost 

Enn... ég á líka oft erfitt með að skilja karlmenn.. þrátt fyrir það hversu yndislegir þeir geta verið  þessar elskur, ljúfir og mjúkmæltir, brosa breitt InLove .. og ekki gæti ég hugsað mér að vera án þeirra.. ó neiWink 

En hér sit ég í dag, 36 ára gömul, kona á besta aldri sem þóttist nú hafa þó nokkra reynslu af þessum samskiptum öllum saman.. en er þó engu nær - og ég er ALLS ekki að skilja karlmennShocking  .. eða ..hm.. ég hef að sjálfsögðu einn tiltekinn ljúfling í huga Blush sem er að valda mér miklum heilabrotum í dag.

En mitt allri þessari melankólíu rekst ég á ég á eftirfarandi.. frekar skondin lýsing á því hvernig "Karlmenn fara í sturtu" ..kom mér að minnsta kosti til að brosa allan hringinnLoL ... því stundum er gott að "reyna" að nota húmorinn til að koma sér í gegnum erfiða dagaCrying

AÐ FARA Í STURTU EINS OG KARLMAÐUR:

Farðu úr fötunum, sitjandi á rúminu og skildu þau eftir í hrúgu fyrir framan rúmið. Gakktu nakinn í átt að baðherberginu.

Ef konan sér þig á leiðinn, hristu þá "vininn" og segðu Vúúííí!!

Skoðaðu karlmannlegt vaxtarlag þitt í speglinum og dragðu djúpt andann til að athuga hvort þú sért með "sixpakk". Horfðu með aðdáun á stærðina á "félaganum" , gríptu um hann og segðu ; " jú vonna pís of ðis beibí".

Farðu í sturtuna. Ekki hafa fyrir því að leita að þvottapoka - ekki nota hann ef þú rekst á hann. Þvoðu þér í framan, undir höndum og "vöðvann". Hlæðu kjánalega yfir því hvað það heyrist hátt þegar þú rekur við í sturtu.

Notaðu sjampó í hárið en ekki nota næringu. Búðu til móhíkana-kamb með sjampóið í hárinu. Dragðu aðeins frá sturtuhengið til að sjá sjálfan þig í speglinum (tíhíhíhíhí). Pissaðu (í sturtunni að sjálfsögðu).

Skolaðu þig og farðu úr sturtunni. Ekki taka eftir vatninu á gólfinu (sem kom til af því að þú hafðir hengið fyrir utan sturtubotninn). Þurrkaðu þér lauslega. Horfðu á sjálfan þig í speglinum. Taktu nokkrar "pósur" og horfðu með aðdáun á stærðina á "jókernum" (aftur).

Ekki draga fyrir sturtuna, og skildu eftir blautt gólf. Ekki slökkva inná baði. Gakktu í átt að svefnherberginu með handklæðið um mittið. Ef að þú rekst á konuna , dragðu þá handklæðið frá, gríptu um "gossann" , taktu eina Elvis-sveiflu og segðu "Ssssjabúmm."

Athugaðu hvort að nærbuxurnar séu blettóttar, ef ekki, farðu þá í þær. Taktu sundur sokkaparið á gólfinu. Brjóttu aðeins úr þeim, og farðu í þá. Farðu nýjan bol, en vertu annars í sömu fötum og nú notaðir í gær.  

 

Hafið það nú sem allra best um helgina 

knus Kissing

 

 

 

 

 

 

 


Að grípa egg

 Ég er byrjuð í nýju námskeiði í lýðheilsufræðunum ; Skipulag aðgerða og þróun úrræða í lýðheilsu. Er búin að hlakka mikið til þessa námskeiðs, sérstaklega vegna þess að við erum með frábærann  kennara. Hún heitir Kerry Bozza, er bandarísk og kemur sérstakleg hingað til lands til að kenna þennan áfanga í HR. Happy Hún kenndi okkur í desember sl. og var það einn skemmtilegasti áfanginn sem ég hef farið í hingað til.

Kerry er alltaf hress, ótrúlega jákvæð, hefur sérstakan hæfileika til að láta okkur líða vel í tímunum hjá henni þrátt fyrir einstaka "tungumálaerfiðleika". En umfram allt, þá notar hún oft óhefðbundnar kennsluaðferðir. Á síðasta námskeiði hjá henni fórum við m.a. í kappræður - á ensku Shocking , spiluðum jeopardy  ( að sjálfsögðu um lýðheilsu) og notuðum leikræna tjáningu til að skilja betur ónæmiskerfi líkamans. Smile 

Í fyrsta tímanum hjá Kerry á mánudaginn sl. fórum við svo í eggjaleik W00t  - svona rétt til að hita okkur upp fyrir námskeiðið - hehe.

Þetta fór þannig fram að Kerry skipti okkur í 5 hópa. Þar næst fékk hver hópur nestispoka með 3 A4 blöðum, 3 tyggjóplötum, 6 pappírsklemmum, 1 teygju, 1 plastbolla,  1 fernu af kókómjólk, 1 blýanti, litlu bandi, 3 bómullarhnoðrum og 1 litlu trépriki. Fyrir hvern og einn hlut þurfti að borga vissa upphæð (mismikið þó) og aukalega gat maður keypt nokkra cm. af límbandi og nokkur klipp (með skærum).

Við fengum svo 25 mínútur til að útbúa einskonar öryggisnet - má líka kalla það "grípara" (eins ódýrt og einfalt og hægt var) - fyrir hrátt egg sem var látið falla (free - fall egg) ca. 2 metra - frá lofti niður í "gríparann". Það gefur auga leið að ef "gríparinn" náði ekki að grípa eggið.. hm.. þá lenti það á gólfinu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum  Shocking úps..

Eggið átti þannig að tákna þýðið eða fólkið sem við (lýðheilsufræðingar) berum ábyrgð á -  eða réttara sagt reynum að vernda fyrir þeim ýmsu heilsufarslegum hættum sem umkringir það í daglegu lífi - jeps.

Nú minn hópur stóð sig alveg svakaleg vel... þó ég segi sjálf frá Grin . Við útbjuggum mjög hentuga og umfram allt ódýra lausn á vandamálinu. Við notuðum plastbollann, útbjuggum svo trekt úr 2 A4 blöðum sem við stungum ofan í bollann. (við notuðum 2 cm af límbandi til að festa þetta saman) Þar næst  tókum við bómullarhnoðrana, settum þá í botninn og helltum svo kókómjólk yfir til að þyngja herlegheitin og gera bollann stöðugri. Þetta var sem sagt hönnunin Wink hljómar vel ekki satt??

Við fengum þar á eftir 3 mínútur til að stilla upp "gríparanum" - það var auðvitað mjög mikilvægt að eggið lenti í "gríparanum" en ekki svona rétt til hliðar eða eitthvað í þeim dúr og miklar pælingar fylgdu því auðvitað.FootinMouth 

Kæru vinir, þið megið ekki gleyma að að þetta átti var "free fall",  hrátt egg sem átti að detta 2 metra niður í "gríparann" !! Spennan var gríðarleg..Kerry hengdi eggið upp, klippti svo á bandið... og...  jú,jú, þetta gekk bara eins og í sögu og lendingin var mjúk og hvergi sást rispa á egginu Tounge Við stóðum okkur sem sagt með mikilli prýði og ættum því að geta kallað okkur lýðheilsufræðinga með réttu eftir eggjaleikinn... eða .. ég tel okkur að minnsta kosti vera á réttri leið. Blush  Ég vil þó nota tækifærið og nefna það hér.. þannig að enginn móðgist..hehe.. að allir hóparnir stóðu sig mjög vel og kláruðu eggjaverkefnið með stælCool

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband