Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Að slá konu gullhamra

Ég heimsótti elskulegu litlu systur mína hana Rönku í gærkvöldi.

Var skutlað á staðinn í  löggubíl.. Gasp.. var tekin á leiðinni.. - nei annars..bara smá grín hehe Wink. En af því að kellan nennti ekki í strætó og vildi spara sér leigubílinn tók hún upp símtólið og hringdi í einn af uppáhalds einkabílstjórunum sínum.. sem vill svo merkilega til að er lögga Police sem var á bakvakt í gær. Jeps..þannig komst ég til Systu og fékk þessi ljúflingur að sjálfsögðu koss Kissing fyrir viðvikið.

Systu og mér tókst svo á næstu klukkustundum að klára nokkra kalda öllara, ræða heimsins mál og málefni, fara á trúnó og leggja Tarotspil. Ekki man ég nú nákvæmlega spádóminn en við urðum þó sammála um það að góðir tímar væru framundan Smile - auðvitað.

Svo var hresst upp á make-upið og arkað sem leið lá niður Laugaveginn. Áfangastaður;  Ölstofa Skjaldar og Kormáks. Þar hittum við Helgu P. hjúkku og göngugarp með meiru, barinn var svo í framhaldi af því heimsóttur og einn kaldur keyptur Cool

Eftir því sem leið á nóttina fylltis Ölstofan enn meira - í bókstaflegri merkingu  - og enn fleiri fylltust örvæntingu í leitinni að ástinni Heart Hitti ég einn þeirra í nótt.  Hann kom að mér, dökkhærður með breitt smjaðurslegt bros. Ekki ómyndarlegur, hafði búið erlendis í mörg ár og höfðum við þannig ýmislegt að ræða um.  Eitt kunni hann líka fyrir sér.. það var að slá konu gullhamra. Ég .. kellan.. var sú flottasta, gáfaðasta, fallegasta mest sexí kona sem hann hafði í sínu lífi hittJoyful Og það sem hann nefndi ekki; bláu augun - flottust.. hárið - fallegast.. - munnurinn - hm... nefni það nú ekki heheWhistling Enn... ég hugsaði með mér, fínt haltu bara áfram..ég veit ég er æði..hehe.. og gáfuð líka hehe og svo sæt Kissing Og..hann hélt áfram.. og áfram.. hann var greinileg búinn að prófa þetta allt áður og líklegast hafði þetta virkað fyrir hann.. í einhverjum tilfellum.. en á mig - kelluna var þetta ekki alveg að virka.. ég fór bara í staðinn á algjört egoflip, tók öll þessi smjaðurmæli inn og hugsaði með mér "hm..já..þetta er bara aldeilis fínt fyrir sjálfstraustið og mína innri konu". Svo brosti ég bara breitt Grin og sagði; "takk, takk" og reyndi þar næst að koma mér undan og láta mig hverfa. Ætlaði að finna Systu og Helgu en þær hvergi sjáanlegar og ákvað ég því að yfirgefa staðinn og leggja í leigubílaröðina. Ég var rétt nýkomin út fyrir þegar daðraranum tókst að þefa mig uppi.. vildi endilega fylgja mér í leigubílaröðina. Ég hugsaði með mér; ok fínt...hafði svo sem ekkert á móti því að hafa félagsskapinn enda hálfeimana eftir að hafa týnt stelpunum. Mér varð það þó nokkuð ljóst, að eftir því sem við nálguðumst leigubílaröðina meira að hann hugsaði sér greinilega að verða SAMFERÐA mér í bílnum.

Nei,,takk Sick það var ekki málið fyrir kellu..alveg sama hversu mikið hann hafði skjallað mig fyrr um nóttina. Þegar við komum að röðinni tókst mér því einhvern veginn að smeygja mér inn á milli nokkurra hávaxinna karlmanna (og kvenna enda er kellan frekar lágvaxinn) og hreint út sagt lét mig hverfa, týnast..hm.. fela mig. GetLost Ég sá hann sveima fyrir utan skýlið... leitandi að mér.. og kannski var þetta frekar ljótt af mér en ég var búin að taka þá ákvörðun að vilja ekkert með hann hafa.. og síst af öllu taka leigubíl með honum!! Ég varð því ekkert smá fegin þegar ég sá hann hverfa á brott, kannski leitandi að annarri konu til að slá gullhamra.. hver veit.

Ég aftur á móti, beið og beið í alltof langri, leiðinlegri og snjókaldri leigubílaröð í að minnsta kosti klukkutíma. Ég var alvarlega farin að íhuga það að hringja í einhvern til að sækja mig.. ótrúlegt að þurfa að bíða svona lengi eftir leigubíl..ojj. Ég var því orðin frekar köld og þreytt þegar ég loksins komst heim til mín í nótt..alltof,alltof seint  FootinMouth enda hefur dagurinn í dag borið þess merki Sleeping

 

 

 

 

 

 


Keilir er málið...

Fór í stórkostlega göngu í dag. Veðrið upp á sitt besta og ekki bætti úr skák að ég var samfloti með alveg frábærum konumTounge Er búin að þjálfa rass og læri, orðin sólbrún og endurnærð eftir daginn. Wink 

Endilega skoðið NÝJU  bloggsíðu Gönguhópsins JáSæll (sjá link vinstra megin á síðunni) - þar er ég búin að setja inn myndir og skrá litla ferðasögu.

Hér erum við skvísurnar flottar á toppi Keilis:

IMG_0052

 


Ég er svo heppin..

Ég er svo heppin að reka ekki bíl. Eftir margra ára búsetu í Danaveldi þar sem tveir jafnfljótir, hjól, vespur og önnur undarleg farartæki á tveimur hjólum eru aðal samgöngutækin tók ég þá ákvörðun að reyna að vera dönsk á Íslandi. Fara allra ferða minna fótgangandi eða í strætó. Smile Spara pening og vera umhverfisvæn - græn. Ég hef þó verið svo heppin að eiga oft góða að, bæði vini og vandamenn sem ég hef ráðið í vinnu hjá mér sem einkabílstjóra.  Þeir hafa skutlað mér hingað og þangað - þó aðallega í matvörubúðirnar sem virðast oftar en ekki liggja einhversstaðar  í jaðri úthverfanna. Þegar stórinnkaup standa svo fyrir dyrum er nær ómögulegt fyrir konu eins og mig (þó svo að hún sé sterk og ágætlega á sig komin ) að koma sér heim með vörurnar. Þá hafa einkabílstjórarnir komið sterkir inn Wink.

Í Danmörku reddaði maður sér aftur á móti annaðhvort með því að; a) að taka innkaupavagninn með sér heim...þægilegt enda hægt að skella heilum kassa af Carlsberg (30 flöskur) undir körfuna eða b) nota gamlan barnavagn og skella vörunum í .. það er reyndar líka hægt að setja heilann kassa af Carlsberg undir hann Grin og þannig er barnavagninn einnig mjög handhægur. Ég verð að viðurkenna að ég hef hreinlega ekki lagt í það að rúlla Netto kerrunni úr Mjóddinni upp í í Gljúfraselið.. hvað þá að ná mér í einn gamlan barnavagn Woundering  Þarf kannski að íhuga þetta í framtíðinni, ég gæti kannski komið af stað nýju "trendi" hérna á Íslandi..viljum við ekki öll spara og reyna að vera svo GRÆN!

Annars er eitt af því besta við að vera fótgangandi að sleppa við það að þurfa að fara út í umferðina á morgnana. Ég geng sem sagt úr Seljahverfinu yfir í Kópavoginn, ca. 20 mínútna ganga aðra leiðina. Og smá fróðleikur; þar sem Lýðheilsustöð mælir með því að fullorðnir einstaklingar hreyfi sig að minnsta kosti 30 mínútur á dag er kellan er að ná þessu og rúmlega það..hehe.. Ég er bara ansi ánægð með mig Grin og svo næ ég að halda mér í formi fyrir allar "fjall" göngurnar sem eru framundan í vor og sumar. Gott mál það.

Læt fylgja nokkrar myndir með frá gönguferðinni í morgun, sólin skein, fuglarnir sungu og ég mætti endurnærð í vinnunaCool

IMG_0001IMG_0003IMG_0004


Loksins er kellan farin að blogga

Jæja, þá kom að því að frúin færi nú að tæknivæðast og byrjaði að bloggast. Takk fyrir elsku Ásdís að koma mér af stað.. án þín væri ég hmm.. Blush jæja en þú sparkaðir mér að minnsta kosti af stað.

Hvernig væri nú að skrifa með stærra letri FootinMouth hmm..- er svona að prófa mig áfram með síðuna en ákvað að byrjaði á því að skella nokkrum myndum inn úr fermingu Elísu Guðrúnar 16. mars sl. þar sem nánasta fjölskyldan var samankomin í á heimili foreldra minna í Fitjasmáranum. Frábær dagur sem heppnaðist vel.

IMG 0112Við erum flottar mæðgurnar InLove

 Ætla að lokum að láta fylgja með eitt af uppáhaldsatriðum mínum úr Fóstbræðrum. Hef undanfarið verið ansi dugleg inni á YouTube og skannað video o.fl.  - að mínu mati eru þeir algjörir snillingar og betra grín hefur ekki sést í íslensku sjónvarpi. Algjör snilld.. hér eru MogoJacketCool

 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband