23.5.2008 | 10:46
Tilkynning
Borist hefur tilkynning um að nýtt frumefni hafi fundist "Frumefnið Karl"
Frumefnið finnst: í sófum, á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum endanum á vindli eða veiðistöng. Sjaldan þó nálægt börnum.
Eðlisþyngd: 70-140 kg - og er breiðast um miðjuna.
Eðliseiginleikar: Þenst út í nálægð peninga og valds, skreppur saman í grennd við ryksugu og gólfskrúbba. Fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á við umræður um jafnrétti og kvenfrelsi. Þó ósjálfbjarga án kvenna.
Efniseiginleikar: Dregst að fokdýrum dauðum hlutum, tækjum og tólum. Ofsafengin viðbrögð við skort á umönnun og eftirtekt þ.e. ósjálfbjarga án kvenna.
Notkun: Nauðsynlegt til æxlunar en ekki til teljandi gagns að öðru leyti.
Hristist við notkun.
Varúð: Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki á verði.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.5.2008 | 00:17
Sætar á Vörðuskeggja
Við Íris fórum í yndislega göngu sl. sunnudag. Örkuðum á Hengil, 14 km fram og tilbaka og erum við bara ansi stoltar af því afreki. Sitjum þarna á toppnum er kallast Vörðuskeggi, bara nokkuð flottar þó ég segi sjálf frá
Fleiri myndir inn á www.gongugarpar.blog.is - og ég lofa..nú fer ritstíflan að losna og Melkorka fer aftur að blogga eða...eftir Eurovisionið..áfram Ísland og Eurobandið
jibii..
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.5.2008 | 20:36
166 Rauðar blöðrur og 15 Svartar blöðrur
Takk fyrir frábæra göngu í dag - endilega kíkið í myndaalbúmið; Ganga gegn Slysum hér til hliðar.
Melkorka
![]() |
Gengið gegn slysum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2008 | 17:16
Grasrótin í Fjöldagöngu Gegn Slysum
Þær eru flottar stelpurnar í BAS hópnum: Bríet, Anna og Soffía sem standa fyrir Slysagöngunni þann 8 maí nk.
Ég veit það vel..en ég er ALLS EKKI hlutlaus því þessar Orkukonur eru líka meistaranemar í Lýðheilsufræðunum..og því skóla - og lærdómsvinkonur
En Orkurnar hafa staðið í ströngu undanfarnar vikur og daga við skipulagningu göngunnar og er allt að smella saman þessa vikuna og mynda eina heild.
SlysaGangan snýst fyrst og fremst um það að vekja athygli almennings á afleiðingum umferðarslysa og hversu víðtaka áhrif þau geta haft fyrir gerendur, þolendur, aðstandendur og aðra er koma að slysinu.
Í göngunni taka m.a. þátt; sjúkraflutningamenn, útfararstjórar, lögreglan, fulltrúar áfallateymis á Bráðavakt Landspítalans, læknar, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfar og sjúkraþjálfar sem tákn um þá mörgu aðila í grasrótinni sem koma að umferðarslysum með einum eða öðrum hætti.
Við lok göngunnar ( við þyrlupall Landspítalans) munu 166 Rauðum blöðrum verða sleppt til tákns um öll þau alvarlegu umferðarslys sem urðu á árinu 2007.
15 Svörtum blöðrum verður sleppt til tákns um þá sem létust í umferðarslysum á árinu 2007.
Þetta er rosalega flott framtak hjá BAS hópnum og hvet ég alla sem vettlingi geta valdið að mæta fyrir framan Landspítalann á Hringbraut, fimmtudaginn 8. maí kl. 16:30 - taka þátt og sýna stuðning í verki.
![]() |
Gengið gegn slysum á fimmtudag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.5.2008 | 18:36
Precede -Proceed módelið
Skólinn er nú aldeilis búinn að taka meira og minna allan minn tíma þessa vikuna.. og bara lítill sem enginn tími fyrir bloggið En ég ætla nú að reyna að bæta aðeins úr því núna.. og já.. deila með ykkur hinu stórkostlega PP módeli sem hefur haldið mér bíssí undanfarna daga.
Ég er sem sagt búin að vera í mjög krefjandi hópavinnu undanfarið hjá henni bandarísku Kerry, eggjakonunni ef þið munið sem lauk svo með nemendafyrirlestrum í gær.
Kerry er búin að vera að þræla okkur í gegnum svokallað Precede-Proceed planning model sem er eins konar skipulagsmódel sem greinir m.a. markhópinn, skilgreinir vandamálið,.. eða í stuttu máli hjálpar að velja aðferð og kenningar við hæfi og beita þeim rétt þegar leysa skal eitthvað tiltekið vandamál. Þetta getur auðvitað skipt sköpum um hvort tiltekið lýðheilsuverkefni skilar árangri eða ekki!!
Módelið skiptist í 9 skref sem ég ætla ALLS ekki að fara nánar út í hér..en..ég og hinar skvísurnar í hópnum erum svoleiðis búnar að reita hár, svitna og bölva.. yfir þessu öllu saman ..ótrúlega flókinn pakki. Ég ætla samt að taka það fram að húmorinn
var aldrei langt undan, enda nauðsynlegt þegar um svona krefjandi vinnu er að ræða þar sem maður er saman með hópnum sínum ...liggur við.. dag og nótt.. marga daga í röð
En til að gera langa sögu stutta þá var okkur úthlutað markhópi sem var hvorki meira né minna en aldraðir eða seniors eins og það heitir víst á henni ensku ylhýru.
Annars.. ef ég fer eitthvað að sletta á ensku..þá er skýringin sú að öll kennsla, verkefnavinna og fyrirlesturinn hefur meira og minna farið fram á ensku ..jeps.. maður er bara orðin ansi góður
En aftur til gamla fólksins. Hópurinn minn..sem samanstóð reyndar af hinum frábæru konum; Bríeti..hjúkku með meiru...sem er reyndar að skipuleggja hinu árlegu Göngu gegn Slysum 8. maí nk. - en meira um það síðar.., Paulu hinni hálfbandarísku heilsueflingargúrú og Helgu Björk, hjúkku og næringarfræðingi sem aldrei gefst upp þó á móti blási -allt hörku stelpur.
Kemur kannski ekki á óvart en við ákváðum að fókusera á karlmenn 65+ og reyna að skoða það, hvernig hægt væri að draga úr einangrun og einmanaleika hjá þeim er búa einir heima. Tilgangurinn var m.a. að draga úr tíðni þunglyndis hjá markhópnum og þannig auka lífsgæði þeirra. Tíðni þunglyndis hjá öldruðum er reyndar mjög lítið rannsakað hér á landi en allt virðist benda til þess að þetta sé mun stærri hópur en opinberar tölur segja til um
Til að ná til þessa hóps ákváðum við (eftir miklar pælingar, gagnaöflun og mörg lög af precede-procede) að setja af stað verkefni sem kallað er Mind-Well og bíður eldri mönnum m.a. heimsóknir (eins konar heimsóknarvinir) og ráðgjöf. Við gáfum út bækling og stofnuðum vefsíðu www.mind-well.is. Hér fyrir neðan nokkrar myndir af skvísunum, bekknum og bæklingnum - og ég vil taka það fram að við erum bara ansi ánægðar með afraksturinn.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)